BLOGGER TEMPLATES AND TWITTER BACKGROUNDS

Saturday, March 20, 2010

Crash Kings

Byrja þetta tónlistarblog mitt á góðum nótum og bendi fólki á band sem ég heyrði fyrst í í myndinni Zombieland en kannaði betur á youtube, en ég og youtube erum miklir vinir.

Crash Kings eru frá LA og gáfu út sína fyrstu plötu 26.maí 2009 og er þetta rock með jazzlegu ívafi á köflum. Hljómsveitin samanstendur af tveim bræðrum og einum skólafélaga. Tónlist þeirra er bæði rokk einsog það gerist best en svo detta þeir líka niður í pop/jazz í líkingu við Kean eða aðrar slíkar hljómsveitir. Það verður gaman að fylgjast með þeim í framtíðinni.
Læt fylgja hér tvö myndbönd þar sem þetta tvennt sem ég minnist á hér að ofan kemur vel fram. Það fyrsta er rokkið og hitt er popp/jazzið

Crash Kings - Mountain Man


Crash Kings - Come away